Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistarskólinn
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
23. mars 2020 15:06 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.)

Viðbrögð við Corona-veiru

Skólanum lokað

Nú hefur verið ákveðið að skólahald í Stórutjarnaskóla og Þingeyjarskóla falli niður fram að páskum.  Þetta á við um allar deildir skólanna.  Nemendur Stórutjarnaskóla fá í dag senda heim pakka með námsgögnum sem þeim er ætlað að vinna í næstu dagana.  Skólabílstjórarnir eru svo vingjarnlegir að koma til ykkar með þessa námsgagnapakka nú síðar í dag.  Kennarar munu svo verða í sambandi við heimilin til að koma af stað "fjarnámi" í mismunandi myndum.  Þið megið því búast við símhringu eða tölvupósti frá kennurum síðar í dag eða á morgun.

 
Það er afar mikilvægt fyrir börnin að þeim verði haldið reglulega að námi þessar tvær næstu vikur sem þau munu stunda nám sitt heima hjá sér.  Þar munu kennararnir leggja sitt af mörkum en einnig er mikilvægt að foreldrarnir fylgi börnunum eftir.  Vonandi gengur þetta vel hjá okkur.

 
Það eru vissulega undarlegir og erfiðir tímar sem við lifum nú.  Skólinn vill leggja sitt af mörkum til að minnka sem allra mest hættuna á að börn og fullorðnir veikist af Covid-19 veirunni því eins og allir vita geta það orðið mjög erfið veikindi.  Sú ákvörðun að loka skólum í Þingeyjarsveit áður en um það kom skipun frá heilbrigðisráðherra, er sameiginleg ákvörðun viðbragðsteymis sveitarfélagsins og skólastjóranna.  Smit hafa verið að koma upp hér í Suður-Þingeyjarsýslu síðustu dagana og einhverjir foreldrar eru komnir í sóttkví.  Þess vegna er talið skynsamlegra að loka strax en bíða ekki eftir því að veiran fari að dreifa sér um skólana.  Einnig hefur orðið vart við hræðslu foreldra og sífellt fleiri hafa verið að tilkynna að þeir muni ekki senda börn sín í skóla, jafnvel þó þeim verði haldið opnum.  -  Við vitum að fyrir suma foreldra getur þetta orðið mjög erfið staða en við vonum innilega að fólk sýni málinu skilning. - Gangi okkur öllum vel.

 


Til baka



ÁLIT LESENDA

Lokun skóla (26. mars 2020, kl. 13:25)

Sæl verið þið öll Ég er full af velvilja, en skilingur minn er eitthvað takmarkaður. Hefði kosið að fara eftir ráðum sóttvarnarlæknis í þessu sem öðru. Hef fullt traust á Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Með kveðju og brosi á vör Guðrún Þórhalls

Guðrún Þórhalls

 


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
272829303112
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
Janúar 2021

5. jan. 2021

Öðruvísi dagatal


21. des. 2020

Á jólunum er gleði og gaman


18. des. 2020

Jólakveðja tónlistardeildar


15. des. 2020

Jólasöngvar og jólaskreytingar


10. des. 2020

Jólaföndur


1. des. 2020

Kveikt á jólatrénu


6. nóv. 2020

Vistheimt


30. okt. 2020

Hryllilega fallegt fólk