Vorið 2020 var vissulega langt frá því að vera hefðbundið. Vegna Covid 19 faraldursins var nemendum Stórutjarnaskóla kennt með fjarkennslusniði frá miðjum mars og fram til 20. apríl, en eftir það má segja að kennsla hafi verið með hefðbundnu sniði.
Skóla var slitið þann 29. maí með nokkuð öðrum hætti en vant er. Nemendur mættu þegar nokkuð var liðið á morgun, fóru í heimastofur og fengu þar afhent námsmat sitt, allir nema 10. bekkur. Hin eiginlega útskrift fór síðan fram í matsal, þar sem allir viðstaddir, allir nemendur skólans, starfsfólk og foreldrar tveggja útskriftarnemenda úr leikskóla og tveggja útskriftarnemenda úr grunnskóla mættu til hátíðarverðar. Þarna útskrifaði skólastjóri börnin ásamt deildarstjóra leikskóladeildar og umsjónarkennara 10. bekkjar. Kvenfélag Ljósvetninga færði 10. bekknum hefðbundna útskriftargjöf, bók með ýmsum leiðbeiningum og heilræðum út í lífið og Marge Alavere hlaut verðlaun frá danska sendiráðinu fyrir góðan árangur við dönskunám. - Nú eru grunnskólanemendur komnir í sitt sumarfrí, að loknum afar óvenjulegum vetri, en leikskólinn verður áfram opinn til 10. júlí nk. Myndir hér.