Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
23. júní 2021 13:47

Kveðjukvöldverður

Sunnudagskvöldið 20. júní  komu starfsmenn Stórutjarnaskóla saman í matsal skólans til að kveðja starfsfólk sem nú hverfur á braut frá skólanum og til að kveðja hvert annað, svona þegar menn hverfa út í sumarið.  Kokkurinn okkar, hann Sardar eldaði dýrindis lambasteik eins og honum einum er lagið og svo bjó hann til aldeilis frábæra ostaköku í eftirrétt.  Sardar er frábær kokkur.

 

Þær Sigrún Sveinbjörnsdóttir skólasálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir fráfarandi umhverfisráðherra skólans voru báðar kvaddar með miklu þakklæti fyrir ákaflega vel unnin störf um áraraðir.  Tvær góðar konur sem sett hafa góðan svip á skólastarfið.  Báðar voru þær leystar út með málverkum og stuttum þakkarávörpum.  -  Eins var með Þórhall Bragason, sem reyndar er hættur fyrir fáeinum árum, hann fékk loksins núna málverkið sem hann átti að fá þegar hann lét af störfum.  Tolli setti svo sannarlega svip sinn á skólastarfið meðan hans naut við og má segja að hann hafi verið einn vinsælasti kennari skólans í tímans rás.  -  Það héldu ýmsir ræður við þetta tækifæri en þau Tolla og Óli kvöddu líka samstarfsfólk sitt og þökkuðu fyrir 27 frábær ár við Stórutjarnaskóla þar sem engan skugga hefur borið á samstarf og starfsanda allan þennan tíma.  -  Myndir hér.
 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
28293031123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829301
2345678
Júní 2023

20. maí 2023

Vortónleikar Stórutjarnaskóla


19. maí 2023

Innritun í tónlistardeild


27. apr. 2023

Talað við afreksfólk


27. apr. 2023

Umhverfis- og lýðheilsuþing


13. apr. 2023

Sjaldgæfur fugl týnir lífinu


13. apr. 2023

Á skíðum


13. apr. 2023

Öskudagsskemmtanir


28. mar. 2023

Stórutjarnaskóli hlaut Umhverfisverðlaun Þingeyjarsveitar