Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
13. september 2021 12:59

Afhjúpun og blessun minnisvarða um Jaan Alavere

Föstudaginn 3. september var ár liðið frá því að okkar stórkostlegi tónlistarkennari og vinur Jaan Alavere féll frá. Var af því tilefni afhjúpaður og blessaður minnisvarði um hann á lóð skólans. Minnisvarðinn er steinn sem kom ofan úr fjallinu ofan við Birkihlíð og segja fróðir menn að Jaan hafi sjálfur sent okkur steininn. Samkomunni stjórnaði Ólafur Arngrímsson. Hann sagði nokkur orð um Jaan, tildrög þess að hann og Marika komu til okkar og einnig um störf hans hér og í samfélaginu. Óli þakkaði einnig þeim sem komu að því að hanna skjöld og flytja steininn og koma honum fyrir. Marika afhjúpaði minnisvarðann  og Sr. Jónína Ólafsdóttir flutti blessunar- og minningarorð. Þá bað Ási um orðið og minntist Jaans með hlýjum orðum. Að lokum sungu nemendur skólasönginn sem Jaan samdi við texta Anítu Þórarinsdóttur.

 

Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem sáu sér fært að mæta og minnast Jaans með okkur á þessari fallegu samverustund. Öllum er að sjálfsögðu velkomið að koma að minnisvarðanum og minnast Jaans. Myndir hér.

 
Starfsfólk Stórutjarnaskóla 

 

Myndir: jr


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
567891011
Nóvember 2021

16. maí 2022

Afmælishátíð


16. maí 2022

Umhverfis- og lýðheilsuþing og vortónleikar


4. maí 2022

Umhverfis- og lýðheilsuþing og Vortónleikar Stórutjarnaskóla


22. apr. 2022

Gleðilegt sumar


5. apr. 2022

Skólakynningar MA og VMA


10. mar. 2022

Litríkur tunnusláttur


3. mar. 2022

Menningarstund


20. feb. 2022

Þorrablót yngri og eldri