Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
18. maí 2022 13:42

Í mörgu að snúast hjá elstu nemendunum

Eftir að covid-19 takmörkunum var aflétt hefur verið í nógu að snúast hjá okkur í 9. - 10. bekk. Við höfum bæði fengið nemendur úr öðrum skólum í heimsókn til okkar og farið í heimsóknir í aðra skóla.

8. - 10. bekkur Valsárskóla, Grenivíkurskóla og Þelamerkurskóla kom til okkar í mars og vorum við búin að skipuleggja ratleik og allskyns þrautir fyrir þau.

 

Í mars fórum við líka í heimsókn í Reykjahlíðarskóla ásamt Þingeyjarskóla. Þar var mikil dagskrá langt fram eftir degi, fórum í allskyns leiki, bökuðum pizzu og fórum í jarðböðin og enduðum svo á balli um kvöldið.

 

Eftir páskafrí erum við svo búin að fara í heimsókn í Þelamerkurskóla ásamt hinum SAM-skólunum þar sem við tókum þátt í íþróttadegi með mikill keppni. Við fórum líka í heimsókn í Þingeyjarskóla ásamt Reykjahlíðarskóla þar sem var mikil gleði og gaman, m.a. keppni í kókosbolluáti og allskonar leikir. Um kvöldið enduðum við svo á að fara í félagsmiðstöðina þeirra þar sem m.a. var farið í pup quiz.

 

Það er líka búið að vera mikið um að vera í náminu og hæst bera að nefna að við gáfum út skólablað. Það fór mikil vinna í það, þar sem við vildum hafa það veglegt í tilefni af 50 ára afmæli skólans, og skólablaðsins. Blaðið má nálgast rafrænt hér: Tjarnapóstur 2022 (yumpu.com).

 

Síðasta fimmtudagskvöld var síðasta féló vetrarins og venju samkvæmt þá skipulagði 9. bekkur kvöldið fyrir 10. bekk og kvaddi þau með virktum. 9. bekkur gaf verðandi útskriftarnemendunum allskonar góðgæti að borða eins og brokkolímauk, sardínur og ætiþistla. Eftir matinn fóru svo allir í fatasund og skemmtu sér þar.

Í dag erum við svo að leggja á stað í langþráð útskriftarferðalag og er stefnan sett að venju á Færeyjar þar sem við munum skoða landið og lenda vonandi í einhverjum ævintýrum. Myndir hér.

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
3456789
Júní 2022

7. feb. 2023

Enginn skóli í dag


10. jan. 2023

Litlu-jól


3. jan. 2023

Dansvika


18. des. 2022

Sundlaug Stórutjarnaskóla


9. nóv. 2022

Árshátíð í lit


31. okt. 2022

Árshátíð Stórutjarnaskóla 2022


20. okt. 2022

Bleiki dagurinn


20. okt. 2022

Menningastund 12. október