Í dag var fyrst og fremst unnið með líffræðilegan fjölbreytileika. Nemendum var skipt í hópa sem könnuðu lífríki tjarnanna austan við skólann. Veidd voru síli og önnur smádýr og þau skoðuð og rannsökuð. Einnig rannsökuðum við fuglalífið í kringum skólann, töldum tegundir og skoðuðum á hvernig vistsvæðum tegundirnar virtust halda sig.
Þá reyndum við að taka upp furugræðlinga sem nú dreifa sér ört út frá u.þ.b. 40 ára gömlum furum sem plantað var niðri við tjarnirnar. Ef fram fer sem horfir munu þessar furur verða mjög áberandi í gróðurfari hólanna innan einhverra áratuga. Við viljum reyna að hægja á þessari útbreiðslu. - Þá kom hér Sigríður Þorvaldsdóttir, starfsmaður Landgræðslunnar, en á síðustu árum höfum við, í samstarfi við Landgræðsluna og Landvernd unnið að sérstöku verkefni sem kallað er "vistheimt". Verkefnið felst í því að kanna árangur af hinum ýmsu uppgræðsluaðferðum. Útbúnir voru sérstakir afmarkaðir reitir þar sem þessar mismunandi aðferðir eru notaðar. Í dag vorum við fyrst og fremst að hressa upp á reitina okkar en nákvæmar mælingar á árangri af aðferðunum fara fram á haustin. - Í lok dagsins fengu menn svo að leika sér í sundlauginni eða eiga rólega stund á þurru landi. Myndir hér.