4. desember 2018 12:11 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.)
100 ára fullveldis minnst
Danssýning og almenn gleði
Nú er hin stórskemmtilega dansvika að baki en henni lauk síðastliðinn föstudag með danssýningu nemenda. Kara Arngrímsdóttir kom og kenndi dansinn með sama sniði og hún hefur gert undanfarin 30 ár. Geri aðrir betur.
Áður en danssýningin hófst fluttu nemendur stutta þjóðlega dagskrá þar sem minnst var 100 ára afmælis fullveldis íslensku þjóðarinnar. Einnig höfðu verið settar upp sagnfræðilegar sýningar á göngum skólans þar sem lesa mátti ýmsan merkan fróðleik. Allt var þetta vel gert og gaf góða mynd af íslensku þjóðlífi árið 1918 og síðar. Að dagskrá lokinni var svo öllum viðstöddum boðið í veislukaffi að hefðbundnum sið, þar sem fólk átti góða stund við spjall og veitingar. Myndir hér.
Kærar þakkir til ykkar allra fyrir skemmtilega stund á föstudaginn. Upplesturinn hjá yngstu börnunum var einstaklega vel fluttur og búningar við hæfi. Eldri nemendur voru með mjög fína tímalínu, vel skrifuð, fyndin og skemmtileg. Ég skoðaði mjög góðar sögusýningar inni á gangi og fallegir fánar frammi við matsal. Dansinn allltaf flottur hjá nemendum, þau læra ótrúlega mikið á þessum stutta tíma, vel gert. Bestu þakkir fyrir frábært kaffisamsæti. Kara er alveg einstök. Takk Kara. Ég sakna ykkar allra :)