Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
10. desember 2021 10:43

Aðventutónleikar og 1. des

Miðvikudaginn 1. desember gerðum við okkur dagamun hér í Stórutjarnaskóla. Um leið og nemendur komu í skólann um morguninn var kveikt á útijólatréinu okkar í 11 stiga frosti. Dansað var í kringum tréið og sungin nokkur lög. Ármann spilaði á nikkuna og stjórnaði söngnum. Eftir hádegi fluttu nemendur fjölbreytt tónlistaratriði þar sem jólatónlist var áberandi en einnig voru á dagskrá atriði tengd fullveldi Íslands.

 

Tónlistarkennarar héldu utan um tónlistarfluttning þar sem bæði hljómsveitir og einstaklingar stóðu sig með mjög vel. Kórinn söng einnig nokkur falleg jólalög. Þá höfðu umsjónarkennarar ásamt sínum hópum tekið saman og æft atriði í töluðu máli. Eldri hóparnir sögðu frá aðdraganda þess að Ísland varð fullveldi, sjálfstæðisbaráttunni og kynntu Jón Sigurðsson og Ingibjörgu Einarsdóttur. Hópur 2 lék þjóðsöguna um Fóu feykirófu, Hópur 1 flutti kvæðið um jólasveinana eftir Jóhannes úr Kölum og leikskóladeildin spilaði á rithmahljóðfæri og söng Krummi svaf í klettagjá.

 

Eftir dagskrána var komið að spari-kaffi sem Sardar og Guðbjörg höfðu útbúið. Nóg var til í frystinum af girnilegu bakkelsi sem bakað hafði verið fyrir árshátíð. Ég vil þakka nemendum og starfsfólki fyrir yndislega stund þar sem allir gerðu sitt besta og stóðu sig með prýði.

 

Vegna stöðu á heimsfaraldri var ákveðið var að takmarka gestakomur inn í skólann nú á aðventunni. Með hækkandi sól á nýju ári vonumst við til að geta haldið þorrablót og afmælishátíð án takmarkanna. Það verður auglýst síðar.

 

Myndir:  Jólatré

             Aðventuhátíð

             Fullveldishátíð

 

Myndir: jr


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
3456789
Júní 2022

2. jún. 2022

Sumarfrí


2. jún. 2022

Sundlaug og bókasafn


27. maí 2022

Vordagar


18. maí 2022

Í mörgu að snúast hjá elstu nemendunum


16. maí 2022

Afmælishátíð


16. maí 2022

Umhverfis- og lýðheilsuþing og vortónleikar


22. apr. 2022

Gleðilegt sumar


5. apr. 2022

Skólakynningar MA og VMA