8. febrúar 2021 20:36 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.)
Þorrablót
4. febrúar s.l. fóru fram þorrablót í Stórutjarnaskóla. Fyrra blótið var haldið eftir hádegið og var samkvæmt venju fyrir yngri hluta nemenda, þ.e. fyrir nemendur leikskólans og upp í 5. bekk grunnskólans. Foreldrar mættu ekki með börnum sínum að þessu sinni vegna sóttvarna. Síðara blótið var svo um kvöldið fyrir 6. - 10. bekk auk starfsfólksins. Á báðum þessum þorrablótum var að sjálfsögðu snæddur afbragðs góður þorramatur sem þau Sardar og Guðbjörg í eldhúsinu sáu um. Einnig var almennur söngur líkt og gerist á alvöru þorrablótum fullorðinna.
En skemmtiatriðin verða þó sennilega það sem lengst verður í minnum haft því á báðum þorrablótum fluttu nemendur frábær skemmtiatriði sem þeir höfðu sjálfir samið og æft. Að herma eftir kennurum og starfsfólki skólans er alltaf vinsælt og sumir nemenda hafa náð stórkostlegum árangri í slíkum eftirhermum. Einnig er hefð fyrir því að starfsfólk og skólabílstjórar flytji skemmtiatriði, en vegna sóttvarnarreglna voru bílstjórar utan blóts að þessu sinni. Myndir af þessum ágætu þorrablótum má sjá hér.
Mikið er nú gaman að sjá þessar skemmtilegu myndir af fallegu börnunum. Fann ilminn af réttunum og næstum bragð. Greinilegt að ekki dregur úr leiktilþrifunum, og veislustjórin! Maður lifandi... Þetta hefur verið eitthvað