samstarf við foreldra

Mikilvægt er að góð samvinna sé ætíð til staðar milli starfsfólks leikskólans og foreldra. Mikilvægt er að báðir aðilar geti haft frumkvæði að samskiptum þegar ástæða er til og séu duglegir að hafa samband og ræða málin ef eitthvað kemur upp. Það er besta leiðin til þess að leysa málin og hafa ánægð börn.


Foreldrafundur er ætíð í byrjun skólaárs, þar sem fjallað er um starf skólans auk þess sem skólanámskráin er kynnt.
Þá eru foreldraviðtöl, þar sem foreldrum gefst kostur á að ræða um barn/börn sín sérstaklega. Foreldrakaffi, afa- og ömmukaffi og ýmislegt fleira er einnig á dagskrá. Allt skipulagt samstarf við foreldra er auglýst sérstaklega.

 

Foreldrafélag Stórutjarnaskóla er jafnframt foreldrafélag leikskólans og eiga foreldrar leikskólabarna jafnan einn tengilið í stjórn félagsins.